Wednesday, June 20, 2012
Jóka breytti rétt að þessu sinni
Jóka réð góðan og vandaðan embættismann í starf í forsr.neytinu. Það var ekki pólitísk ráðning. Pólitískar ráðningar voru það að Árni Páll gerði Helgu að ráðuneytisstjóra og Jóka gerði LáruV. að formanni í seðlabankaráði. Einnig var það pólitísk ráðning að ráða lögfæðing sem ráðuneytisstjóra í forsr.neytinu en það gerði Höfðabrekku-Jóka svo sannarlega. Almennt séð á ekki að ráða lögfræðinga í opinber störf. Pungapróf í lögfræði felur í sér það, að viðkomandi lögfræðingur fær ekki vísindalega þjálfun. Þvert á móti er um að ræað það, sem einn rithöfundur kallar réttilega göfgaðan orðhengilshátt. Tveir þriðju af opinberri umræðu á Íslandi snýst um orðhengilshátt. Þess vegna hafa menn "lög-vísindi", sem eiga þó ekkert sammerkt með vísindum, mjög í hávegum á Íslandi. Þetta hefur verið staðfest svo oft að ekki tjóar að hamra þann steðja frekar og enn. Auðvitað er Arnar Þór vinur minn Másson hárréttur maður á réttum stað og tíma. Allt annað er orðhengilsháttur og það staðfestir auðvitað sá dómur sem var í dag upp kveðinn.
Wednesday, June 13, 2012
Ríkisstjórn SJS og Jóku riðar til falls
Auðvitað er þetta fyrst og fremst ráðuneyti og ríkisstjórn SJS en ekki Jóku. SJS var fjármálarh þá þegar áætlun AGS stóð yfir og nú er hann maðurinn sem á að ganga að sjávarútvegnum dauðum. Ekki heil brú í þessum árásum á lífsviðurværi fólks um allt land. Þó er maður langt í frá því að lesa Mogga dags daglega. En Þráinn hólmsteinski nýfrjálshyggu-hagfræðingur segir sem svo: kvótakerfið í sjávarútvegi er merkasta framlag Íslands til fiskihagfræðinnar ellegar stofnanahagfræðinnar. Í hinu síðarnefnda er Þráinn þessi prófessor á við háskóla á Íslandi og í Nýju Jórvík í samnefndu fylki/ríki Bandaríkjanna. Hvers vegna að leggja til atlögu við það sem vel hefur tekist til með, sem sé því að rekin sé frjáls markaðsbúskapur í sjávarútvegi Íslands. Meira að segja Evrópusambandið færir sig hægt og bítandi í átt að íslenska kvótakerfinu.
Subscribe to:
Posts (Atom)